Orlofsréttindi og orlofsuppbót

Orlofsréttindi

Samkvæmt kjarasamningi var breyting á orlofsávinnslu á líðandi orlofstímabili og því verða orlofsréttindi á komandi orlofstímabili sem hefst 1. maí 2026 eftirfarandi:

  • Starfsmaður sem starfað hefur í 6 mánuði í sama fyrirtæki og náð hefur 22 ára aldri eða í 6 mánuði í sama fyrirtæki eftir framhaldsskólapróf skal eiga rétt á orlofi í 25 daga og skulu orlofslaun vera 10,64% (óbreytt frá árinu áður)
  • Eftir 5 ár í sömu starfsgrein skal starfsmaður hafa 26 daga orlof og skulu orlofslaun vera 11,11%
  • Eftir 4 ár hjá sama fyrirtæki eða 10 ár í sömu starfsgrein skal starfsmaður hafa 28 daga orlof og skulu orlofslaun vera 12,07%
  • Eftir 6 ár í sama fyrirtæki skal starfsmaður hafa 30 daga orlof og skulu orlofslaun vera 13,04% 

Orlofsuppbót

Við minnum á að orlofsuppbót félagsfólks er 62.000 kr. árið 2026, m.v. fullt starf, og á að greiða þann 1. júní. Fullt starf er 45 unnar vikur í 100% starfi fyrir utan orlof á orlofsárinu frá 1. maí 2025 til 30. apríl 2026.

Uppbótin greiðist, miðað við starfshlutfall og starfstíma, öllu starfsfólki sem hefur verið samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl, eða eru í starfi fyrstu vikuna í maí.

Orlofsuppbót er föst tala og tekur ekki launabreytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamnings. Skattur, félagsgjald og lífeyrissjóðsiðgjald greiðist af orlofsuppbót. Orlof greiðist ekki ofan á orlofsuppbótina.

Ávinnsla orlofsuppbótar í fæðingarorlofi
Eftir eins árs starf hjá sama vinnuveitanda teljast fjarvistir vegna lögbundins fæðingarorlofs til starfstíma við útreikning orlofsuppbótar. Sama gildir ef kona þarf af öryggis­ástæðum að leggja niður störf á meðgöngutíma, sbr. reglugerð um ráðstafanir til þess að auka öryggi og heilbrigði á vinnustöðum fyrir konur sem eru þungaðar, hafa nýlega alið barn eða hafa barn á brjósti.