Opið er fyrir orlofshúsaumsóknir

Kæra félagsfólk, 

Búið er að opna fyrir umsóknir um leigu orlofshúsa og Viku að eigin vali fyrir sumarið 2025.

Umsóknarfrestur um orlofshús og Viku að eigin vali er til 25. mars!

Gagnlegir punktar:

  • Umsóknarfrestur er til og með þriðjudeginum 25. mars
  • Sótt er um á félagavefnum
  • Sumarleigutímabil orlofshúsa er frá 4. júní til 22. ágúst 2025
  • Umsækjendur fá svar með tölvupósti varðandi úthlutunina um mánaðarmótin mars/apríl
  • Við minnum félagsfólk á að skrá netfang sitt inni á félagavefnum undir Stillingar > Notandaupplýsingar
  • Þau sem fá úthlutað þurfa að greiða fyrir leiguna í síðasta lagi 7. apríl 2025
  • Opnað verður fyrir lausar orlofsvikur sumarið 2025 og vetrarleigu 2025 til maí loka 2026 á félagavefnum þann 9. apríl kl. 12:00
  • Útilegukortið og Veiðikortið verða til sölu á skrifstofu félagsins með vorinu.

Félagsfólki er bent á að senda fyrirspurnir varðandi orlofsúthlutunina á fvsa@fvsa.is eða hringja í síma 455-1050