Fylkjum liði þann 1. maí!

Alþjóðlegur baráttudagur launafólks verður haldinn hátíðlegur með dagskrá á Akureyri og í Fjallabyggð fimmtudaginn 1. maí.

Í ár fylkjum við liði undir kjörorðunum Við sköpum verðmætin og hvetjum við félagsfólk til þess að sýna samstöðu með því að fjölmenna í kröfugöngu og taka þátt í hátíðardagskrá. 

Dagskrá á Akureyri 2024

Kröfuganga og hátíðardagskrá á Akureyri fimmtudaginn 1. maí

  • 13:45 – Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið
  • 14:00 – Lagt af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar
  • Hátíðardagskrá í Hofi að lokinni kröfugöngu
    • Kynnir er Eyrún Huld Haraldsdóttir
    • Ávarp 1. maí-nefndar stéttarfélaganna, Bethsaida Rún Arnarson
    • Hátíðarræða, Anna Júlíusdóttir, formaður Einingar-iðju
Leikfélag Menntaskólans á Akureyri sýnir atriði úr söngleiknum um Galdrakarlinn í OZ
Karlakór Akureyrar - Geysir tekur lagið

Boðið verður upp á kaffihressingu að dagskrá lokinni. Pylsur, safi og andlitsmálning fyrir börnin.

Dagskrá í Fjallabyggð 2025

  • Boðið verður upp á létta dagskrá í sal félaganna að Eyrargötu 24b Siglufirði fimmtudaginn 1. maí kl. 14:30 – 17:00
  • Ávarp frá 1. maí-nefnd stéttarfélaganna - Ína Sig Stefánsdóttir
  • Kaffiveitingar

Við hlökkum til að hitta ykkur sem flest!